Skessuhorn - fréttir af Vesturlandi - Skessuhornsfréttir
Opið verður til hálf fimm á leikskólum
          <description>Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 2. september síðastliðinn að lengja daglegan opnunartíma leikskóla sveitarfélagsins til klukkan 16:30. Breytingin tekur gildi 1. október næstkomandi. “Föstudagslokun vegna starfsmannafunda verður óbreytt út yfirstandandi ár en byggðarráð felur fræðslunefnd að skoða möguleika að breyttu fyrirkomulagi frá og með árinu 2011,” segir í tilkynningu frá Borgarbyggð.  
Eigendaskipti á kaffikönnu valda pólitískum titringi
          <description>Að undanförnu hefur sérstætt mál verið á vitorði fámenns hóps á Akranesi og þar gjarnan verið talað um „stóra kaffikönnumálið“ í gríni frekar en alvöru. Nú er grínið hins vegar orðið að alvöru þar sem búið er að álykta um það í stjórn Akranesstofu, þeim hluta bæjarkerfisins sem það fellur undir. Mál þetta snýst um snögg eigendaskipti sem urðu á kaffikönnu í eigu Byggðasafnsins að Görðum í sumar og aðkomu varabæjarfulltrúa og embættismanns bæjarins að málinu. Komið var og náð í kaffikönnuna á miðjum degi þar sem hún var í notkun í Garðakaffi. Hafði kannan verið seld til notkunar hjá samkeppnisaðila á Akranesi, án þess að rekstraraðilum Garðakaffis gæfist kostur á að kaupa könnuna eða gera aðrar ráðstafanir til að geta áfram hellt upp á kaffi. 
Ölvun og ólæti við Guðrúnarlaug
          <description>Byggðaráð Dalabyggðar hefur samþykkt að komið verði upp skilti við Guðrúnarlaug að Laugum í Sælingsdal þar sem umgengnisreglur verði skýrðar. Upplýst var á fundi byggðarráðs að vandamál hafi skapast vegna ölvunar og óláta við laugina og óskað var eftir að Dalabyggð leiti lausnar á vandamálinu þannig að ekki valdi truflun á svæðinu. Lagt var til að leitað yrði leiða svo unnt verði að loka lauginni ef þurfa þykir. Þá verður samið um eftirlit með lauginni við endurskoðun samninga við Ungmennabúðir og Hótel Eddu en einnig kom fram á fundinum að endurskoða þurfi samstarfssamning milli Dalabyggðar, Dalagistingar og Ungmennabúða m.a. þar sem breytingar hafa orðið á opnun og umsjón íþróttamannvirkja frá því að núverandi samningur var gerður.
Sprengjusérfræðingar á leið um borð í bát út af Snæfellsnesi
          <description>Togbáturinn Skinney SF-20 tilkynnti í morgun um að í veiðarfærin hafi komið hlutur sem líktist tundurdufli. Síðar var duflið híft um borð þar sem það liggur á þilfari skipsins. Að sögn bátsverja, sem vísir.is ræddi við nú í hádeginu, er um óvenjulega heillegt dufl að ræða. Þegar duflið kom í veiðarfærin var báturinn staddur á humarveiðum í Jökuldjúpi suður af Snæfellsnesi. Siglt var áleiðis til Rifs og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar kallaðir út. Eru þeir nú á leið til skipsins.
Tuddamót Golfklúbbs Staðarsveitar á gróskumiklum Garðavelli
          <description>Síðastliðinn laugardag var mikið um að vera hjá Golfklúbbi Staðarsveitar. Þá var haldið á Garðavelli undir Jökli hið árlega Tuddamót sem er hápunktur golfsumarins hjá félaginu. Mót þetta er allt í senn opið punktamót, liðakeppni Golfklúbbs Staðarsveitar og Golfklúbbs Guttorms tudda en síðast en ekki síst meistaramót GST. Þátttakendur voru um 30 talsins og sáust af og til glæsileg tilþrif hjá kylfingunum en einnig arfaslæm högg eins og gengur.  Aðstæður voru mjög góðar, eða 17 stiga hiti og golfvöllurinn skartaði sínu fegursta; hefur ekki verið grænni og gróskumeiri í allt sumar og hefur greinilega tekið fagnandi á móti ágústvætunni. Um kvöldið var síðan blásið til veislu í Langaholti þar sem verðlaun voru veitt, snædd þriggja rétta máltíð að hætti hússins og drukkinn bjór úr bala.
Sérblað um starf tónlistarskólanna á Vesturlandi
          <description>Um þessar mundir er starfsemi tónlistarskólanna á Vesturlandi að hefjast af krafti. Blaðamenn Skessuhorns tóku á síðustu dögum hús hjá skólastjórum sex tónlistarskóla á Vesturlandi. Blað þessarar viku er að stórum hluta helgað kynningu á því helsta sem í gangi er á vettvangi þeirra. Um leið er fræðst svolítið um bakgrunn sjálfra skólastjóranna. Allir eru þeir tónlistarmenn að upplagi og því listamenn hver á sínu sviði.
Sjá ítarlega umfjöllun um vestlenska tónlistarskóla í Skessuhorni sem kom út í dag.
Þráinn Bertelsson gengur til liðs við Vinstri græna
          <description>Þráinn Bertelsson alþingismaður er genginn í Vinstri hreyfinguna – grænt framboð og þingflokk hennar. Þráinn var kjörinn á Alþingi vorið 2009 fyrir Borgarahreyfinguna en hefur verið þingmaður utan flokka síðan í ágúst sama ár.  “Þingflokkur Vinstri grænna býður Þráin velkominn í hóp þingmanna flokksins og fagnar liðsstyrknum sem honum fylgir,” segir í tilkynningu frá VG í morgun.
Fáfarnir vegir lagfærðir með styrkvegafé
          <description>Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í vikunni var kynnt framlag Vegagerðarinnar til viðhalds styrkvega um fjórar milljónir króna. Jafnframt var á fundinum lögð fram tillaga framkvæmdasviðs um framkvæmdir við styrkvegi í sveitarfélaginu.  Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri segir að þetta væru allmargir vegspottar í héraðinu sem haldið hafi verið við um árabil og Vegagerðin styrkt. Þetta væru vegslóðar sem tengdust haustleitum, að eyðibýlum og leitarmannakofum. Sem dæmi um þessa vegi nefndi Páll veginn frá Grímsstöðum gegnum Syrði-Hraundal og áfram inn að Hítardalsvegi. Þessi leið væri talsvert farin af ferðamönnum, sem og fleiri af þeim vegslóðum sem sveitarstjórn vill viðhalda.  
Geitungabaninn
          <description>Íbúar Vesturlands hafa ugglaust margir orðið varir við geitunga á sveimi í sumar en aldrei hefur jafn mikið verið af holugeitungum og í ár. Þá er einnig sjaldgæft að geta fylgst með þeim svona langt fram á haust eins og nú er raunin. Skessuhorn ræddi við Ingólf Valdimarsson meindýraeyði um fjölgun geitunga og annarra skorkvikinda. Ingólfur segir geitunga afar dugleg dýr, skynsama og vinnusama. Bendir hann á að þeir hafi því eiginleika sem hentað gætu víða, t.d. í ríkisstjórn.
Sjá viðtal við Ingólf geitungabana í Skessuhorni sem kom út í dag.
Framhaldssaga handa börnum í tilefni alþjóðadags læsis
          <description>Í tilefni af alþjóðadegi læsis, í dag miðvikudaginn 8. september, er þess farið á leit við blöð víða um heim að þau birti sögu fyrir börn. Skessuhorn hefur orðið við beiðni um það. Sagan “Goðsögnin um tár Litla hestsins,” er ævintýrasaga í 12 köflum eftir metsöluhöfundinn Mary Maden. Sagan verður birt í Skessuhorni, fyrsti kafli hennar í dag og síðan vikulega til og með 24. nóvember nk. Foreldrar eru hvattir til að leyfa börnum sínum að fylgjast með og lesa söguna, en tilgangurinn er, eins og nafn verkefnisins bendir til, að auka lesskilning og bæta læsi.