Prentað fimmtudaginn 2. september kl. 21:24 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ertu fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju?

Veit ekki

Nei

Borgarfjörður: Mánudag 6. september
Bjarnarbraut 8 Borgarnesi
Akranes: Mánudag 6. september
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
Snæfellsnes: Mánudag 6. september
Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
2. september 2010 14:01

Tólf sveitarfélög skulda meira en tvöfaldar árstekjur sínar

Samkvæmt ársreikningum sveitarfélaga hér á landi eru 22 þeirra með skuldir umfram viðmiðun eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga í A hluta reikningsskilanna, þ.e. yfir 150% af heildartekjum. 30 sveitarfélög eru hins vegar á lista þar sem skuldsetning er mikil bæði á A og B hluta sveitarsjóða. Peningaleg staða þessara sveitarfélaga er þó mjög misjöfn vegna peningalegra eigna sem kunna að nýtast á móti skuldum. Á árinu 2009 var rekstrartap á A hluta hjá 38 sveitarfélögum í landinu. Eftirlitsnefnd hefur sent 12 sveitarfélögum aðvörun vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og óskað eftir upplýsingum um hvernig sveitarstjórnir hyggjast bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélaganna.  Jafnframt hefur nefndin óskað eftir endurskoðaðri fjárhagsáætlun til næstu þriggja ára frá þessum sveitarfélögum.

 

 

 

meira...
 

 
2. september 2010 13:01

Kiwanisklúbburinn Þyrill veitir veglega styrki

Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akranesi fagnar um þessar mundir 40 ára afmæli og af því tilefni veitir klúbburinn veglega styrki til líknarmála og félagasamtaka. Fór afhending styrkja fram á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi miðvikudagskvöldið 1. september sl.  Kiwanisfélagar hafa í tilefni afmælisins gefið ýmsan búnað á dagdeild Sjúkrahússins á Akranesi. Hófst athöfnin með því að læknar og deildarstjórar kynntu starfsemi deildarinnar fyrir kiwanisfélögum og gestum. Styrkirnir voru síðan afhentir formlega í matsal sjúkrahússins þar sem boðið var upp á kaffi og meðlæti.

 

 

 

meira...
 

 
2. september 2010 12:01

Ágúst var einn hlýjasti mánuðurinn frá upphafi mælinga

Um vestan- og suðvestanvert landið var ágústmánuður einn af fimm hlýjustu mánuðum frá upphafi mælinga en í öðrum landshlutum var hann tiltölulega svalari. Hiti var þó alls staðar yfir meðallagi. Þetta kemur fram í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar. Meðalhitinn í Reykjavík var 12,1 stig í ágúst, 1,8 gráðu yfir meðallagi, og í Stykkishólmi var hann 11,7 stig, eð 2,1 gráðu yfir meðallagi. Ágústmánuður var heldur þurr en þurrkanna gætti meðal annars í ám og vatnsbólum þannig að til vandræða varð á stöku stað. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 34,3 mm og er það 66% af meðalúrkomu.

 

 

 

meira...
 

 
2. september 2010 11:32

Skuldabréf Jeratúns ehf. sett á athugunarlista

Kauphöll Íslands hefur sett skuldabréf gefin út af Jeratúni ehf., á athugunarlista. Jeratún er einkahlutafélag í eigu sveitarfélaganna Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,

Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar um byggingu og rekstur skólahúss Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Bera sveitarfélögin ábyrgð á skuldbindingum Jeratúns. Kauphöllin setur þessi skuldabréf á athugunarlista með vísan til ábendingamálsgreinar í áritun endurskoðanda í uppgjöri sem birt var dags. 27. ágúst síðastliðinn. Fram kemur í árshlutareikningi að eigið fé félagsins var um mitt árið neikvætt um 46 milljónir króna þrátt fyrir 25 milljóna króna hlutafjáraukningu á tímabilinu. Tíu milljóna króna tap varð á rekstri félagsins á fyrri hluta ársins. Segir í umfjöllun endurskoðenda að sökum bágrar fjárhagsstöðu félagsins sé ljóst að nokkur óvissa sé um rekstrarhæfi félagins og ljóst að leigutekjur Jeratúns, sem greiddar eru af ríki og þeim sveitarfélögum sem standa að rekstri félagsins, standi ekki undir rekstri félagsins til að Jeratún geti staðið við skuldbindingar sínar.

Hér má sjá árshlutareikninginn í heild sinni.

 

 

 

 

 
2. september 2010 10:24

Guðbjartur líklega að taka við ráðherraembætti

Nú stendur yfir flokksráðsfundur Samfylkingarinnar. Samkvæmt heimildum Skessuhorns leggur Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins og forsætisráðherra fram þá tillögu að úr ráherraliði flokksins víki Kristján L Möller samgöngu og sveitarstjórnarráðherra. Árni Páll Árnason taki við efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og hverfi því úr félagsmálaráðuneytinu. Við sameinuðu félagsmála,- trygginga- og heilbrigðisráðuneyti taki Guðbjartur Hannesson, alþingismaður í NV kjördæmi og fyrrum skólastjóri á Akranesi. Ráðuneytið mun fá nafnið velferðarráðuneyti. Ráðherrar utan flokka, Ragna Árnadóttir og Gylfi Magnússon munu hverfa úr ríkisstjórn og allar líkur eru á að Ögmundur Jónasson taki við dóms- og mannréttindaráðuneytinu í nýrri ríkisstjórn, ásamt samgöngumálunum, en Álfheiður Ingadóttir láti af ráðherraembætti. Ríkisráðsfundur er boðaður klukkan 11:30 í dag og munu þá hrókeringar á ríkisstjórn endanlega skýrast.

 

 

 

 

 
2. september 2010 10:01

Segir kvótakerfið hagstætt og virka vel

“Ég er óhræddur við stöðu sjávarútvegsins, svo framarlega sem stjórnvöld setja okkur ekki mjög íþyngjandi reglur. Ég myndi ekki vilja sjá miklar breytingar gerðar á kvótakerfinu, það er hagstætt og hefur virkað mjög vel,” sagði Hjálmar Kristjánsson framkvæmdastjóri KG fiskverkun ehf. í Rifi í samtali við Skessuhorn. Vinnu starfshóps um endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu fer senn að ljúka en Hjálmar er ekki mjög bjartsýnn á að það komi eitthvað haldbært frá þeim hópi. Engu að síður er hann bjartsýnn á framtíð íslensks sjávarútvegs nú í upphafi kvótaárs með þeim fyrirvara þó að greinin fái að starfa án mikilla og íþyngjandi aðgerða stjórnmálamanna.

Sjá viðtal við Hjálmar í Skessuhorni vikunnar.

 

 

 

 

 
2. september 2010 09:48

Góð afkoma Sparisjóðs Suður-Þingeyinga

Sparisjóður Suður-Þingeyinga er dæmi um smáa fjármálastofnun sem starfar þó af myndugleik. Markmið eigenda og stjórnenda sjóðsins er og hefur verið að standa þétt við bakið á viðskiptavinum sínum á ákveðnu markaðssvæði, en viðskiptavinum víðsvegar af landinu fjölgaði þó mikið í bankahruninu þar sem í ljós kom að sjóðurinn var ein fárra fjármálastofnana sem skilaði hagnaði um það leyti sem margir bankar fóru í þrot eða áttu í miklum rekstrarvanda.  Sjóðurinn hefur aðalstöðvar sínar á Laugum í Reykjadal en útibú í Reykjahlíð og Húsavík. Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga nam 40 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, en rúmlega 31 milljón króna eftir skatta.  

 

 

 

 

 
2. september 2010 09:40

Færri eru andvígir aðildarviðræðum við ESB

Í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar, þar sem spurt var um afstöðu til aðildarviðræðna við Evrópusambandið, kemur fram að af þeim sem taka afstöðu eru 38,8% sem styðja áframhaldandi samningaviðræður Íslands við ESB. Andvígir áframhaldandi samningaviðræðum eru 45,5%, óákveðnir eru 15,7%. Það var Capacent sem vann könnunina fyrir samtökin Sterkara Ísland, daganna 18. – 25. ágúst sl. Sterkara Ísland er í raun andhverfusamtök við Heimssýn, sem berst gegn aðild að ESB. Í könnun sem gerð var í byrjun júní kom fram að aðeins 24,3% vildu þá halda fyrirhuguðum viðræðum við ESB áfram. Því hefur fjöldi Íslendinga sem styður samningsviðræður Íslands við ESB fjölgað mikið í sumar eða úr 24,3% í 38,8%. Að sama skapi hefur þeim sem eru andvígir samningaviðræðum fækkað en í byrjun sumars vildu 57,6% Íslendinga draga umsókn um aðild að ESB til baka,  en nú í lok sumars eru 45,5 % andvígir samningaviðræðum. 

 

 

 

 

 
2. september 2010 09:01

Íþróttaleiðtogi og skólamaður sem segist vera eini núlifandi böðullinn

2. september 2010 08:01

Framkvæmdagleði í Snæfellsbæ

2. september 2010 07:01

Farið að róast á ferðaþjónustustöðum

1. september 2010 22:52

Unnið við að koma rafmagni á verksmiðju Norðuráls á ný

1. september 2010 22:20

Reykur frá rofarými við verksmiðju Norðuráls á Grundartanga

1. september 2010 16:01

Kotbýlið Vík hefur verið hafið til vegs og virðingar

1. september 2010 15:01

Segist fram að þessu fremur hafa valið fólk en flokka

1. september 2010 14:30

Íslendingar kaupa ódýrara áfengi

1. september 2010 14:01

Auðveldaði búskapinn að þekkja allar kindur með nafni

1. september 2010 13:48

Grundfirskar konur sigursælar á Vesturlandsmóti

1. september 2010 13:25

Sveitarfélagið átti að meta væntingarréttinn í smölunarmáli

1. september 2010 13:18

Úrskurðarnefnd lækkar verð á ýsu

1. september 2010 12:03

Örfá vestlensk sjávarútvegsfyrirtækja meðal kvótahæstu

1. september 2010 11:59

Hlaut rithöfundaverðlaun Vestnorræna ráðsins

1. september 2010 10:22

NMT farsímakerfið hefur runnið sitt skeið

1. september 2010 09:44

Hundrað manns kynna sér starfsemi Björgunarfélags Akraness


eldri fréttir

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 21:10  A 9  14°C
Akrafjall 21:10  ANA 7  15°C
Hafnarfjall 21:10  SA 7  16°C
Vatnaleið 21:10  SA 8  13°C
Hraunsmúli 21:10  ASA 5  14°C
Fróðárheiði 21:10  SA 10  11°C
Brattabr. 21:10  SV 3  13°C
Holtav.h. 21:10  S 3  13°C
Laxárdalsh. 21:10  A 4  13°C
Svínad. 21:10  S 3  14°C
 
Akrafjall 21:00  ANA 7  15,0°C
Ásgarður 21:00  NA 4  15,4°C
Brattabrekka 21:00  SSV 2  12,7°C
Fróðárheiði 21:00  SA 8  10,8°C
Grundarfj. 21:00  ASA 4  15,6°C
Gufuskálar 21:00  ASA 8  15,2°C
Hafnarfjall 21:00  SA 8  16,5°C
Holtavörðuheiði 21:00  S 3  13,2°C
Hraunsmúli 21:00  A 5  14,6°C
Húsafell 21:00  SSA 4  15,0°C
Hvanneyri 21:00  ASA 7  15,0°C
Kjalarnes 21:00  A 9  14,3°C
Reykhólar 21:00  ANA 3  15,6°C
Stykkishólmur 21:00  SA 3  16,0°C
Vatnaleið 21:00  SA 7  13,3°C
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent