




|
Skessuhorn, 22. maí 2013
Miðvikudaginn 23. nóvember 1955 gat að líta dapurlega frétt í dagblöðum á Íslandi. Mörgum var brugðið, ekki síst íbúum Akranesbæjar og fólki í sveitunum umhverfis Akrafjall. Tveimur dögum fyrr hafði bandarísk herflugvél frá Keflavíkurflugvelli rekist á klettabeltin í norðurhlíðum fjallsins, tæst í sundur og fjórir menn farist. Enginn virtist hafa orðið var við slysið. Flakið fannst ekki fyrr en rúmum sólarhring eftir að vélin fórst. Þá hafði þegar verið lýst eftir henni og umfangsmikil leit hafin bæði á sjó og úr lofti. Á þessu ári eru 58 ár liðin síðan þetta slys varð. Enn má finna tætlur af braki úr vélinni í hlíðum Akrafjalls rétt vestur af svokölluðum Pyttum beint ofan við bæinn Ós. Nokkrir heimamenn á Akranesi hafa unnið að því að setja upp minnisvarða um þetta slys við rætur fjallsins neðan við þann stað þar sem flugvélin fórst.
Í ítarlegri frásögn í Skessuhorni í dag skrifar Magnús Þór Hafsteinsson um slysið og ekki síst aðdraganda þess og byggir frásögn sína á skýrslu bandaríska flughersins um atburðinn. Frásögn þessi hefur ekki birst í fjölmiðlum áður.
|
||
|
Skessuhorn, 21. maí 2013
Skagamenn náðu í sín fyrstu stig í Pepsídeildinni í kvöld þegar þeir unnu 2:0 sigur á Fram á Akranesvelli. Gestirnir voru engu að síður betra liðið í fyrri hálfleiknum og voru snemma leiks nálægt því að skora, en Páll Gísli varði vel í marki Skagamanna, til að mynda aukaspyrnu sem Framarar fengu alveg við teiginn. Þvert gegn gangi leiksins skoruðu Skagamenn á síðustu andartökum hálfleiksins. Joakim Wrele skoraði af stuttu færi eftir góða sendingu frá Theodore Furness. Heimamenn byrjuðu síðan seinni hálfleikinn af krafti. Á 47. mínútu áttu þeir góða sókn upp hægri kantinn og Hallur Flosason skoraði af markteig. Skagamenn vörðust síðan vel og áttu inn á milli góðar sóknir þannig að þeir voru allt eins líklegir til að bæta við mörkum en gestirnar að minnka muninn. Fleiri urðu mörkin ekki og ÍA er nú komið með 3 stig og færðist þar með úr 11 sætinu í það 9. til 10.
|
Skessuhorn, 21. maí 2013
Ný reglugerð um bann við hvalveiðum tekur gildi á miðnætti. Í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu segir að í ljósi þess að hvalveiðitímabil sé nú að hefjast hafi ráðherra óskað eftir tillögum nefndar, sem nú er að störfum í tengslum við stefnumörkun í hvalveiðimálum, um það hvernig griðasvæði hvala skyldi afmarkað í Faxaflóa. Meirihluti nefndarinnar telji ljóst að umfang hvalaskoðunar og þjóðhagslegt mikilvægi hennar hafi aukist á undanförnum árum og mikilvægt sé að umgjörð hvalaskoðunar og hvalveiða sé með þeim hætti að ásættanlegt teljist fyrir báðar atvinnugreinar. „Tillaga meirihluta nefndarinnar er sú að griðasvæði hvala verði stækkað í Faxaflóa og verði frá Garðskagavita og beina línu að Arnarstapa.
|
|
|
Skessuhorn, 21. maí 2013
|
Skessuhorn, 21. maí 2013
Skagakonur í fótboltanum hófu Íslandsmótið í 1. deild með glæsibrag. Þær fengu lið BÍ/Bolungarvíkur í heimsókn í í Akraneshöllina sl. laugardag og unnu stórsigur, 9:0. Fyrsta markið kom strax á 5. mínútu leiksins og staðan í hálfleik var 5:0. Emilía Halldórsdóttir skoraði fjögur mörk í leiknum og þær Guðrún Karítas Sigurðardóttir, Alexandra Björk Guðmundsdóttir, Eyrún Eiðsdóttir og Unnur Ýr Haraldsdóttir eitt mark hver. Síðasta markið í leiknum var sjálfsmark gestanna. Næsti leikur hjá Skagakonum verður gegn Tindastóli á Akranesi nk. föstudag. Hitt Vesturlandsliðið í A-riðli 1. deildar, Víkingur, byrjar keppni í kvöld, miðvikudagskvöld, þegar Víkingskonur sækja ÍR-inga heim í Breiðholtið.
|
|
|
Skessuhorn, 21. maí 2013
Sjö framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ákveðið að bjóða sameiginlega upp á fjarnám með áherslu á starfsnám. Um er að ræða Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólann á Tröllaskaga, Framhaldsskólann á Húsavík, Menntaskólann á Egilsstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu. Í vor verður áhugi kannaður á námi á 15 námsbrautum og í kjölfarið tekin ákvörðun um hvað verði í boði á haustönn. Námið fer fram með stuttum staðbundum lotum og í fjarnámi. Miðað er við að hægt verði að taka námið samhliða vinnu, segir í fréttatilkynningu frá FSN. Nánari upplýsingar um námið má lesa á www.fjarmenntaskolinn.is
|
Skessuhorn
|
|
Á döfinni Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau 28 20 26 1 7 8 Framundan
Dalabyggð: Í dag
kl. 17:00
Toska: Í dag
kl. 18:15
Vallarsel: Á morgun
Dalabyggð: Á morgun
kl. 08:00
Dalabyggð: Á morgun
kl. 13:00
Garðasel: Á morgun
kl. 16:00
Dalabyggð: Á morgun
kl. 17:00
Toska: Á morgun
kl. 20:00 |
|
|
Bókband, bækur til sölu
Tek að mér bókband á hóflegu verði. Er með eftirtaldar bækur til sölu: Búvélar og ræktun, Dalamenn, Strandamenn, Kollsvíkurætt, Ættir Austfirðinga, Sléttuhrepp og Harmsögu ættar minnar. Upplýsingar í síma 557-7957
| Viltu losna við bjúg og sykurþörf FLJÓTT ?
Viltu losna við BJÚG og SÆTINDAÞÖRF fljótt? Oolong og Pu-erh teið er frábær lausn. 100% hreint te án auka- og rotvarnarefna. Mikil brennsla, gott fyrir andlega og líkaml. heilsu. 1 Oolong + 1 Pu-erh 200 pokar á 7.000. 1 pk. á 3.800 S:845 5715 Nína
|
|
Samstarfsaðilar
|