Samkvæmt talningu Ferðamálastofu fór 112.121 erlendur ferðamaður frá landinu í júlí síðastliðnum um Leifsstöð, eða um 14 þúsund fleiri en í júlí á síðasta ári. Aldrei hafa jafnmargir ferðamenn komið til landsins í einum mánuði, eða frá því Ferðamálastofa hóf talningu í Leifsstöð árið 2002. Er aukningin milli ára 14,7% en að jafnaði hefur hún verið 9,6% á ári sl. áratug. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júlí frá Þýskalandi (13,8%) og Bandaríkjunum (13,3%). Ferðamenn frá Bretlandi voru 7,6%, 7,5% komu frá Frakklandi, 7,3% frá Danmörku, 6% frá Noregi og 5,6% frá Svíþjóð. Af einstaka þjóðum fjölgaði Þjóðverjum mest í júlí. Þar á eftir Bretum, Bandaríkjamönnum og Svíum.
|