KR-ingar byrjuðu betur í leiknum og voru þremur stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 22:19. Jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta, en það voru Snæfellingar sem voru yfir þegar gengið var til leikhlés 43:40.
Það var síðan strax í upphafi seinni hálfleiks sem Snæfellingar fóru í gang svo um munaði. Sean Burton, sem hafði haft hægt um sig í fyrri hlutanum, opnaði þristareikninginn og félagar hans í Snæfellsliðinu fóru að hans fordæmi. Átján stigum munaði á liðunum að loknum þriðja leikhluta 75:57 og sama munur hélst út leikinn.
Tíu leikmenn Snæfells skoruðu í leiknum. Þeirra atkvæðamestur var Martins Berkis með 21 stig, Sigurður Þorvaldsson var með 20 stig og Hlynur Bæringsson gerði 19 stig og tók 14 fráköst. Hlynur setti einnig niður 3 af 4 þristum sínum í leiknum og minnti KR-inga á að það þarf líka að dekka hann utan við þriggja stiga línuna. Hjá KR var Finnur Atli Magnússon að leika manna best og gerði 20 stig.
|