Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 01:33 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Brúin yfir Bláskeggsá vígð formlega

23. apríl 2010

Ráðherra og vegamálastjóri skömmu fyrir vígsluna. Ljósm. Skúli Böðvarsson.
Margir lögðu leið sína inn í Hvalfjörð í gær á sumardaginn fyrsta, en þá fór fram formleg vígsla gömlu brúarinnar yfir Bláskeggsá. Það voru Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sem vígðu brúna. Hún var byggð árið 1907 og var brautryðjendaverk, fyrsta steinsteypta brúin á Íslandi utan Reykjavíkur. Hún var breikkuð eftir að bílaöld rann upp og var í notkun fram til ársins 1951. Undanfarið hefur verið unnið að því að koma brúnni í sem næst upprunalegt horf.

Fjölmenni var við vígsluna á fimmtudaginn og fóru samgönguráðherra og vegamálastjóri í hestvagni yfir brúna ásamt hátíðargestum. Af sama tilefni var veglegu upplýsingaskilti komið fyrir og var það afhjúpað af Kristínu Huld Sigurðardóttur, forstjóra Fornleifaverndar ríkisins.

 

 

Vígsludagurinn var hátíðisdagur í Hvalfjarðarsveit og að athöfn lokinni voru kaffiveitingar í gamla Þyrilsskála í boði sveitarstjórnar.

 

Meðal þess sem var að gerast í Hvalfjarðarsveit á sumardaginn fyrsta var myndlistarsýning sem opnuð var í stjórnsýsluhúsinu á Hagamel. Verður sýningin opin út maímánuð, en margir komu og nutu sýningarinnar á opnunardaginn.

 

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Undirskrift 

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 01:20  A 7  8°C
Akrafjall 01:20  ASA 1  8°C
Hafnarfjall 01:20  NA 2  9°C
Vatnaleið 01:20  ANA 2  7°C
Hraunsmúli 01:20  A 4  8°C
Fróðárheiði 01:20  A 6  5°C
Brattabr. 01:20  SV 1  4°C
Holtav.h. 01:20  SSV 3  5°C
Laxárdalsh. 01:20  SSV 2  7°C
Svínad. 01:20  SSA 1  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent