Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 01:00 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Svarti listinn boðar til borgarafundar í Borgarnesi

4. maí 2010

“Svarti listinn boðar íbúa Borgarbyggðar til borgarafundar á B57 í Borgarnesi fimmtudaginn 6. maí næstkomandi kl. 20:00. Þar gefst íbúum kostur á að móta stefnu framboðslistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Svarti listinn er nýr framboðslisti í Borgarbyggð sem hyggur á umbætur á stjórnsýslu sveitarfélagsins,” segir í fréttatilkynningu. Þar segir að Svarti listinn sé þver- eða ópólítískt framtak og muni stefna listans verða mótuð í kjölfar fundarins. “Stefnan kemur því til með að byggja á hugmyndum íbúa sveitarfélagsins og miðast því ekki við hápólítískar flokkslínur gróinna stjórnmálaflokka. Nú er kominn tími á breytingar.

 

 

 

Óvíða á Íslandi er staðan verri en í Borgarbyggð og neita meðlimir Svarta listans að horfa upp á sömu aðila komast að kjötkötlunum enn eina ferðina eins og ekkert hafi í skorist. Ástandið er slæmt og efnahagshruni verður ekki eingöngu kennt um. Óskynsamlegar ákvarðanir fráfarandi sveitarstjórnar, þeirra sömu aðila og sækjast nú eftir endurnýjuðu umboði kjósenda, vega hvað þyngst þegar ástæður hruns Borgarbyggðar eru raktar. Nú er kominn tími til að segja stopp. Sameinumst á B57 á fimmtudagskvöld og mótum framtíð okkar ástkæra sveitarfélags,” segir að lokum í tilkynningu.

 

Verði af framboði Svarta listans verður það fimmti listinn sem býður fram í sveitarfélaginu fyrir kosningar 29. maí. Þegar hafa verið birtir listar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og VG.

 

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:



ÁLIT LESENDA

Frábært framtak (4. maí 2010, kl. 11:54)

Það býr greinilega almennilegt fólk í Borgarbyggð. Gott framtak hjá þeim og gangi þeim vel. Ekki sömu landeyður þarna og á Akranesi þar sem á að hleypa sama liðinu að kjötkötlunum eina ferðina enn svo spillingin geti haldið áfram.

Skagakona

Hugsi (4. maí 2010, kl. 14:52)

Ætli það verði tilboð á barnum á fimmtudagskvöldið?

Einn hugsi

Nafnið á listanum (4. maí 2010, kl. 15:02)

Af hverju svarta listann?.....væri ekki betra að láta hann heita bjarta listann?? Vangaveltur

kona sem þykir vænt um Borgarnes

Þetta er þá hinn umtalaði huldulisti (4. maí 2010, kl. 17:02)

Er þetta listinn sem samanstendur af þeim sem finnst einum of mikið af sveitafólki á listum hinna framboðanna? Síðasta svar bendir allavega til þess að það sé helst Borgarnes sem nýtur væntumþykjunnar.

 


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Undirskrift 

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 00:50  A 8  8°C
Akrafjall 00:50  ANA 3  9°C
Hafnarfjall 00:50  A 4  9°C
Vatnaleið 00:50  ASA 2  7°C
Hraunsmúli 00:50  ASA 4  9°C
Fróðárheiði 00:50  ASA 7  5°C
Brattabr. 00:50  S 2  4°C
Holtav.h. 00:50  SSV 5  5°C
Laxárdalsh. 00:50  SSV 3  7°C
Svínad. 00:40  SSA 3  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent