Klukkan 12 í dag rann út frestur til að skila inn framboðslistum til kjörstjórna vegna sveitastjórnar-kosninganna 29. maí næstkomandi. Á Vesturlandi eru 10 sveitarfélög og er gert ráð fyrir að listakosningar verði í sex eða sjö þeirra. Nú er beðið fregna af því hvort framboðslista hafi verið skilað inn í Dalabyggð, þar sem sitjandi sveitarstjórnarfulltrúar mæltu með persónkjöri. Ef einn framboðslisti skilar sér veitir kjörstjórn tveggja sólarhringa frest til að aðrir geti skilað inn listum. Ef þeir skila sér ekki er framboðslisti sjálfkjörinn. Á meðfylgjandi mynd eru fulltrúar úr kjörstjórn á Akranesi, þau Hugrun O Guðjónsdóttir og Einar Ólafsson. Á hádegi þegar fresturinn rann út höfðu fjögur framboð skilað inn framboðslistum. Það eru Framsóknarmen og óháðir, Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri hreyfingin grænt framboð.
|