Smiðir, málarar, sýningarhönnuðir og ýmsir fleiri voru um síðustu helgi í óðaönn að gera hús og innbú í Englendingavík í Borgarnesi tilbúið fyrir formlega opnun Brúðuheima. “Formleg vígsla verður á morgun, fimmtudaginn 20. maí klukkan 17:00. Þar ætla Katrín Júlíusdóttir ferðamálaráðherra og Páll S Brynjarsson sveitarstjóri að flytja ávörp. Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands mun síðan opna Brúðuheima formlega. Við höfum boðið um 600 gestum til að samgleðjast með okkur á þessum tímamótum. Ég vona jafnframt að Borgnesingar og nærsveitamenn verði ánægðir með útkomuna því vissulega hefur það verið ábyrgðarhluti að taka við þessum gömlu og merku húsum og fylla þau nýju lífi. Á næstu dögum og vikum vonast ég svo til að sjá sem flesta og að þeir fái tækifæri til að upplifa staðinn á nýjan hátt,” sagði Hildur M Jónsdóttir framkvæmdastóri í samtali við Skessuhorn.
|