 |
Oddvitar þeirra 5 framboða sem bjóða fram í sveitarfélaginu. | Undanfarin tvö kvöld hafa frambjóðendur fyrir sveitarstjórnar-kosningarnar í Borgarbyggð staðið fyrir opnum framboðsfundum í sveitarfélaginu. Á mánudag var fundur í Lindartungu og í gærkvöldi í Logalandi. Í kvöld verður síðasti sameiginlegi fundurinn og verður hann í Menntaskóla Borgarfjarðar og hefst klukkan 20:30.
Góð fundarsókn var á fundinum í gær, en þá mættu talsvert fleiri almennir gestir, en fjöldi þeirra sem tengdir eru framboðslistunum beint. Byrjað var á framsöguerindum þar sem flokkarnir kynntu helstu stefnumál sín en síðan var opnað fyrir spurningar úr sal. Meðal þess sem rætt var um má nefna fjármál sveitarsjóðs, niðurskurð í skólamálum, markaðssetningu og sókn sveitarfélagsins til að snúa vörn í sókn, umhverfismál, samgöngur innan héraðs og veg um Uxahryggi, eyðingu refa og minka, sölu fasteigna á borð við eignarhluta í Faxaflóahöfnum og margt fleira.
|