 |
Hanni á Lögbergi á miðunum. Ljósm. HB | Flestir grásleppusjómenn á Akranesi hafa verið að taka upp netin í vikunni og ljúka þar með sinni 62ja daga löngu vertíð, sem jafnframt er ein sú gjöfulasta sem menn muna. Þó eiga nokkrir bátar ennþá eftir net í sjó og enn aðrir að eru hefja veiðar, einkum bátar sem nýlega hafa verið keyptir á Skagann með grásleppuveiðileyfum. Meðal þeirra sem eru að taka upp netin í þessari viku er einn allra reyndasti grásleppukarlinn, Jóhannes Eyleifsson á Leifa AK-2. Hann hefur stundað grásleppuveiðar frá unglingsárum, eða í ríflega hálfa öld. Jóhannes var byrjaður að taka upp netin norður af Skaganum í byrjun vikunnar þegar ljósmyndari Skessuhorns sigldi framhjá honum þar sem hann var staddur á miðunum. Aflinn var góður sem fyrri daginn og karlinn ánægður með vertíðina.
|