 |
Höfundar forsíðumyndar skrárinnar ásamt ritstjóra. | Símaskráin 2010 er komin út. Af því tilefni hefur á ja.is verið opnuð sýning á öllum 1.500 tillögunum sem bárust í forsíðusamkeppni bókarinnar. Verðlaunatillagan „Mundu mig – ég man þig,“ er eftir Önnu Ingólfsdóttur rithöfund og Elísabetu Brynhildardóttur myndlistamann. Prýðir mynd þeirra forsíðu Símaskrárinnar. Símaskráin er 1.560 blaðsíður. Hin hefðbundna símaskrá er afhent án gjalds en harðspjaldaútgáfan kostar 700 krónur. Á landsbyggðinni er Símaskráin afhent á öllum afgreiðslustöðum Póstsins þar sem einnig er tekið við eldri skrám. Í tilkynningu frá ja.is segir að á dreifbýlustu svæðum landsins sjái Pósturinn um að keyra Símaskrána heim til viðtakenda.
|