 |
Sveinn og Guðmundur Páll fagna úrslitunum í nótt. Ljósm. Helgi Dan. | Nú klukkan 14 í dag var að hefjast fundur þriggja flokka á Akranesi um myndun nýs meirihluta. Koma þar saman fulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks og óháðra og Vinstri grænna en saman hafa þessir flokkar sjö bæjarfulltrúa eftir kosningarnar í gær. Að sögn Sveins Kristinssonar oddvita Samfylkingarinnar var lagt upp með að fella meirihluta Sjálfstæðisflokks og tókst það með eftirminnilegum hætti. “Minnihlutinn hefur staðið þétt saman á kjörtímabilinu og við stefnum á að mynda nýjan og sterkan meirihluta og þar af leiðandi einskorðum við í Samfylkingunni hann ekki við þrengsta mögulega meirihluta sem uppi er í stöðunni,” segir Sveinn, en Samfylking gæti við núverandi aðstæður myndað meirihluta með hvaða flokki sem er. “Það er gott fyrir meirihlutann að vera sterkan og að öll sjónarmið komist að og ég tel það ekki vandamál að ná því markmiði okkar. Sá blæbrigðamunur sem var á milli áherslna flokkanna í aðdraganda kosninga var ekki svo mikill að það geti ekki öll sjónarmið rúmast í nýjum meirihlutasamningi ef til þess kemur,” sagði Sveinn Kristinsson.
|