Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar kemur út nú fyrir Sjómannadaginn. Í blaðinu er m.a. að finna margar og áhugaverðar greinar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason skrifar grein í blaðið. Þá er stórfróðleg grein er eftir Ásgeir Jóhannesson um Kaupfélagið Dagsbrún í Ólafsvík og þá um leið kaupfélagsstjóratíð Alexanders Stefánssonar seinna sveitarstjóra, alþingismanns og ráðherra. Undir stjórn Alexanders var Kaupfélagið Dagsbrún mjög öflugt félag og stóð fyrir mörgum verkefnum til heilla fyrir Ólafsvík og enn er fyrirtæki starfandi í Ólafsvík sem stofnað var á þessum árum. Um tíma voru 135 manns sem störfuðu á vegum þess. Alexander var svo seinna sveitarstjóri í Ólafsvík og setti sterkan svip á bæinn með sínum störfum. Þá var hann einnig þingmaður og ráðherra.
|