Bæði Vesturlandsliðin höfðu heppnina með sér þegar dregið var í 16-liða úrslit VISA bikars karla, Bikarkeppni KSÍ. Þau fá bæði heimaleiki. Akurnesingar fá Þrótt Reykjavík í heimsókn, en bæði liðin leika í 1. deildinni. Víkingur Ólafsvík fær heimaleik gegn liði Fjarðabyggðar, en bæði léku þessi lið í 1. deildinni í fyrra. Báðir leikirnir fara fram miðvikudaginn 23. júní. Meðal athyglisverðra leikja í 16 liða úrslitunum er viðureign toppliðanna úr Pepsí-deildinni á síðasta ári og liða sem trúlega koma til með að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í ár. Keflavík og FH munu eigast við í Keflavík í 16 liða úrslitunum.
|