Í Borgarfirði verður farin Jónsmessuganga á vegum UMSB í kvöld miðvikudaginn 23. júní klukkan 20. Gengið verður á Varmalækjarmúla og að lokinni göngu verður boðið í kaffi og meðlæti í veitingahúsinu í Fossatúni. Mæting er á melunum fyrir ofan Fossatún.
Í Grundarfirði er einnig farin ganga í kvöld miðvikudaginn 23. júní. Fyrst verður Jónsmessa kl. 21 í Setbergskirkju, helgun og hollusta. Svo verður gengið upp á Klakk frá Búðarfossi kl. 22.
Á morgun fimmtudaginn 24. júní verður farin Jónsmessuganga frá Akranesi á Háahnúk á Akrafjalli. Lagt verður af stað frá bílastæðinu við rætur Akrafjalls kl. 22. Umsjónarmenn eru þau Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir og Jón Þór Þórðarson. Mikilvægt er að þátttakendur séu vel útbúnir varðandi göngu- og skófatnað. Létt nesti er í boði og þátttakendur fá frítt í Jaðarsbakkalaug eftir göngu.
Jónsmessuganga Ungmennafélagsins Þrasta í Hvalfjarðarsveit verður einnig farin á morgun fimmtudaginn 24. júní. Lagt verður af stað kl. 20 frá félagsheimilinu Miðgarði og gengið upp að bænum Vestri-Reyni, út með Akrafjalli að Reynisrétt og að gömlu hestaréttinni í landi Ytra-Hólms undir leiðsögn Haraldar Benediktssonar bónda. Þar verður grillað í boði félagsins áður en allir verða keyrðir aftur að Miðgarði. Gert er ráð fyrir að gangan taki um eina og hálfa klukkustund.
|