Akurnesingar voru daufir fyrstu 20 mínúturnar á Skaganum og Þróttarar skoruðu gott mark upp úr hornspyrnu á 12. mínútu. ÍA liðið lék betur fram að hálfleiknum en náði ekki að þjarma verulega að marki gestanna. Liðin skiptust síðan á að sækja í seinni hálfleiknum og undir lokin pressuðu Skagamenn mjög að marki Þróttara án árangurs.
ÍA og Þróttur mætast síðan aftur í deildarkeppninni á Skaganum á laugardag og vonandi tekst þá heimamönnum að sigra. Í kvöld fara fram þrír síðustu leikirnir í 16-liða úrslitum Visa-bikarsins og þá verður ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslitin nk. miðvikudag.
þá
MT: Ragnar Leósson á fullri ferð að marki Þróttara í leiknum í gær.
|