Ósigurgöngu Grundfirðinga í þriðju deildinni í knattspyrnu heldur áfram eftir að liðið tapaði útileik gegn Létti 5-2 síðastliðinn föstudag. Grundarfjörður var kominn 3-0 undir eftir aðeins um 20 mínútna leik. Liðið varð svo fyrir áfalli þegar einn lykilmaður liðsins, Tryggvi Hafsteinsson, meiddist illa á öxl og fór af velli. Kom í ljós að hann hafði slitið þrjú liðbönd í öxl og verður að öllum líkindum frá út sumarið. Þá var Hrannar Már Ásgeirsson sendur af velli með rautt spjald eftir að hafa farið með fótinn í “kassann” á leikmanni Léttis. Að sögn þjálfara liðsins, Tómasar Freys Kristjánssonar, var þetta heldur harður dómur en það var ekki hægt að sjá annað en að hér hafi verið um óviljaverk að ræða. Þess má geta að Hrannar var nýkominn úr leikbanni. Leikmenn Léttis bættu svo við einu marki undir lok síðara hálfleiks og staðan í leikhlé því 4-0.
|