Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar vann í gærkvöldi við að slökkva eld sem kviknaði og stóð eftir það brunavakt í verksmiðjunni. Sérfræðingar í áfallahjálp mætti í gærkvöldi á vinnustaðinn og sinnti því starfsfólki sem var að störfum þegar óhappið varð.
“Stjórnendur Elkem á Íslandi harma þetta alvarlega vinnuslys. Samræmdar öryggiskröfur Elkem eru miklar og þrautreyndar en í kjölfar slyssins verða allir verkferlar yfirfarnir og gaumgæfðir eins og frekast er unnt,” segir að lokum í tilkynningu frá fyrirtækinu.
|