Prentað föstudaginn 24. maí kl. 16:25 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Þórður Guðnason er Vestlendingur ársins 2010

5. janúar 2011

Þórður Guðnason björgunarsveitar-maður á Akranesi er Vestlendingur ársins 2010. Hlýtur hann verðlaunin fyrir frækilegt björgunarafrek á Langjökli í lok janúar sem og fyrir sinn þátt í björgun annars mannslífs á Akranesi sl. sumar. Það voru fjölmargir lesendur Skessuhorns sem gáfu Þórði atkvæði sitt. Raunar fékk hann fleiri atkvæði en dæmi eru um í ellefu ára sögu þessara verðlaunaveitinga Skessuhorns. Líklega kemur þetta val fæstum á óvart í ljósi þess að þjóðin tók höndum saman í lok ársins og tilnefndi hann sem Mann ársins á einum þremur öðrum fjölmiðlum; á Rás 2, Bylgjunni og DV.

Alls fengu 37 einstaklingar tilnefningar í valinu á Vestlendingi ársins að þessu sinni. Eftirtaldir ellefu fengu þrjár tilnefningar eða fleiri:

 

 

 

 

Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður.

Baldur Rafnsson, stjórnandi Lúðrasveitarinnar í Grundarfirði.

Bernd og Hildur í Brúðuheimum í Borgarnesi fyrir brautryðjendastarf sitt.

Davíð Óli Axelsson formaður björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ.

Einar Ólafsson kaupmaður á Akranesi.

Eva Karen Þórðardóttir dansskólastjóri í Borgafirði.

Hjörtur og Unnur á Hótel Hamri í Borgarnesi fyrir störf með atvinnulausum.

Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir störf að sameiningu skóla.

Magnús Þorgrímsson forstöðumaður Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra.

Margrét Guðjónsdóttir frá Dalsmynni.

Sæþór Heiðar Þorbergsson í Stykkishólmi fyrir björgunarafrek á árinu og gott starf við rekstur veitingastaðar.

 

Sjá ítarlegt viðtal við Þórð Guðnason í Skessuhorni sem kom út í dag. Þar er einnig rætt við Sæþór H Þorbergsson sem, líkt og Þórður Guðnason, kom að björgun tveggja mannslífa á árinu sem leið.

 

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 16:10  ASA 10  10°C
Akrafjall 16:10  A 6  10°C
Hafnarfjall 16:10  S 9  10°C
Vatnaleið 16:10  SSA 6  8°C
Hraunsmúli 16:20  SA 7  8°C
Fróðárheiði 16:10  ASA 9  6°C
Brattabr. 16:10  S 9  8°C
Holtav.h. 16:20  NNV 3  5°C
Laxárdalsh. 16:10  ANA 4  6°C
Svínad. 16:20  ANA 8  8°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent