Björgunarsveitarmenn úr Borgarfirði, Borgarnesi, Akranesi og af höfuðborgarsvæðinu sóttu í gær slasaðan mann á Heiðarhorn í Skarðsheiði. Maðurinn hafði fótbrotnað þegar hann var við æfingu ásamt félögum sínum úr Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Óhappið varð laust eftir klukkan 15. Þoka var á þessum slóðum og ísing og því ekki flugveður fyrir þyrlu. Um áttatíu björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni sem gekk mjög vel miðað við aðstæður. Færð setti strik í reikninginn en mikil hálka og ísíng var á köflum á leiðinni upp á fjallið og skyggni lítið á toppi þess. Björgunarmenn þurftu af þeim sökum að ganga á mannbroddum mest alla leiðina. Vel var hlúð að hinum slasaða á fjallinu en meðal hópfélaganna var læknir. Björgunaraðgerð lauk um klukkan 21 við Efra Skarði í Hvalfjarðarsveit, þaðan sem maðurinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.
|