Skráning í Lífshlaupið, sem ÍSÍ gengst fyrir, er hafin en það verður ræst í fjórða sinn miðvikudaginn 2. febrúar nk. Um 13.300 manns tóku þátt í Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði þátttakendum um rúmlega 4000 á milli ára. Lífshlaupið á að höfða til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðunni www.lifshlaupid.is en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í vinnustaðakeppni frá 2. – 22. febrúar fyrir 16 ára og eldri, hvatningarleik fyrir grunnskóla fyrir 15 ára og yngri og einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.
|
Markmið Lífshlaupsins er sem fyrr að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Skrá má alla hreyfingu inn á vef Lífshlaupsins svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um hreyfingu. Börn og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag.
|