Prentað fimmtudaginn 20. júní kl. 00:18 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Þriðja tap Snæfells í vetur

1. febrúar 2011

Snæfellingar biðu lægri hlut fyrir botnliði KFÍ þegar liðin mættust á Ísafirði á föstudagskvöldið. Þrátt fyrir tapið er Snæfell enn í efsta sæti IE-deildarinnar með 24 stig, jafnt Grindvíkingum sem einnig töpuðu óvænt í síðustu umferð fyrir Haukum. Bilið í næstu lið hefur styst við þessi töp toppliðanna. KR og Keflavík eru nú aðeins tveimur stigum fyrir neðan, hafa 22 stig hvort félag.

Snæfell saknar Ryan Amaroso sem hefur ekki verið með í síðustu leikjum vegna meiðsla. Þeir mættu mikilli útlendingahersveit fyrir vestan, en alls eru sjö útlendingar í KFÍ liðinu og sáu þeir einvörðungu um stigaskor heimamanna í leiknum. Heimamenn byrjuðu betur í leiknum og það var hlutverk Snæfellinga að elta allan leikinn. Munurinn á liðunum var lengst af ekki mikill. Í leikhléinu munaði aðeins tveimur stigum, 46:44. Það var síðan í lokahluta leiksins sem gestirnir voru gjörsamlega kafsigldir en þá komust Ísfirðingarnir í 20 stiga mun og lokatölur urðu 98:73.

 

 

 

Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells sagði menn hafa verið full værukæra og ekki komið nægilega tilbúnir í leikinn. Liðið hafi alls ekki spilað nógu vel og því farið sem fór. Sem fyrr var Jón Ólafur Jónsson atkvæðamestur hjá Snæfelli, skoraði 23 stig og tók 11 fráköst, Emil Þór Jóhannsson setti 11 stig og tók 4 fráköst, Sean Burton 11 stig og 6 stoðsendingar, Atli Rafn Hreinsson 9 stig og 3 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9 stig og 8 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 6 stig og 3 fráköst, Egill Egilsson 4 stig og  Daníel Kazmi 3.

 

Snæfell fær Tindastól í heimsókn í næstu umferð næstkomandi fimmtudagskvöld.

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 00:10  NNA 0  9°C
Akrafjall 00:10  NNA 2  8°C
Hafnarfjall 00:10  NNA 2  9°C
Vatnaleið 00:10  NV 2  7°C
Hraunsmúli 00:10  NNV 4  11°C
Fróðárheiði 00:00  VNV 4  8°C
Brattabr. 00:10  ANA 4  5°C
Holtav.h. 00:10  NNV 5  4°C
Laxárdalsh. 00:10  NNA 6  5°C
Svínad. 00:00  N 2  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent