Nýlega voru tilboð opnuð í seinni áfanga stækkunar þjónusturýma dvalarheimilisins Höfða á Akranesi. Í þessum áfanga eru innréttingar og fullnaðarfrágangur húsnæðisins. Tilboð bárust frá þremur fyrirtækjum í verkið og var Sjammi ehf. með lægsta tilboðið, 47,9 milljónir króna. Trésmiðjan Akur var með tvö tilboð í verkið, frávikstilboð upp á 53,5 milljónir og aðaltilboð upp á 56,8 milljónir. Þá var tilboð TH ehf 57,8 milljónir.
Á fundi stjórnar Höfða í vikunni sem leið var Guðjóni Guðmundssyni framkvæmdastjóra falið að ganga til samninga við Sjamma ehf á grundvelli tilboðsins, en hann byggði einnig fyrri áfangann. Áætlað er að byggingu þjónusturýmanna verði lokið í lok apríl, en þau munu stækka húsið um 420 fermetra.
|
Á umræddum fundi stjórnar Höfða voru kynnt tilboð í uppsetningu nýs sjúkrakallkerfis, en því verki á að vera lokið í marsmánuði. Framkvæmdastjóra var falið að ganga til samninga við Straumnes ehf. sem bauð rúmar þrjár milljónir kr. í verkið. Tilboð Rafþjónustu Sigurdórs reyndist tæpar 3,8 milljónir króna, en þessi tvö tilboð bárust.
|