Prentað laugardaginn 25. maí kl. 14:46 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

KFÍA fær grasrótarviðurkenningu KSÍ

14. febrúar 2011

Á ársþingi Knattspyrnusambands Íslands nú um helgina var Knattspyrnufélagi ÍA veitt grasrótarviðurkenning fyrir Norðarálsmótið, sem haldið er af félaginu.  „Þetta er afar ánægjuleg viðurkenning, en í fyrra fékk félagið jafnréttisviðurkenningu frá KSÍ,“ segir Gísli Gíslason formaður KFÍA. Gísli segir að þessi grasrótarviðurkenning sé ánægjuleg og mikilvæg viðurkenning til allra þeirra sem lagt hafa félaginu lið við undirbúning og framkvæmd Norðurálsmótsins, en þeir aðilar skipta hundruðum á ári hverju.  „Norðurálsmótið er ekki aðeins mikilvæg tekjuöflun félagsins heldur einnig menningar- og íþróttaviðburður á landsvísu.  Þúsundir barna og foreldra þeirra koma til Akraness til þess að njóta hollrar íþróttaiðkunar og útiveru og bæjarfélagið nýtur þessarar vinnu einnig í ríkum mæli. 

 

 

 

Ekki er öllum ljós sú mikla vinna sem þessu fylgir og mikilvægi þessa verkefnis, en viðurkenningin varpar einmitt góðu ljósi á hversu gott starf þarna er unnið af KFÍA, foreldrum og velunnurum,“ segir Gísli.

 

Tímamótaár á ýmsa lund

Gísli segir að þær viðurkenningar sem KFÍA hefur fengið á síðustu tveimur ársþingum KSÍ sé stjórnum KFÍA mikill heiður og hvatning til að halda áfram á þeirri braut að tryggja sem besta umgjörð knattspyrnuiðkunar á Akranesi; fyrir börn og unglinga af báðum kynjum.  „Margt hefur áunnist en mörg verkefni eru einnig framundan.  Í hönd fer mikilvægt ár í sögu félagsins á 100 ára afmæli Íslandsmótsins í knattspyrnu, en ÍA mun væntanlega leika sinn eittþúsundasta deildarleik á árinu og 60 ár eru nú frá því að fyrsti Íslandsmeistaratitillinn vannst í meistaraflokki.  Það er því spennandi ár framundan og með verðugri viðurkenningu eiga leikmenn allra flokka, starfsmenn, þjálfarar, stjórnafólk og stuðningslið að geta gengið léttstíg og stolt til góðra verka.“

 

 

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 14:30  V 5  6°C
Akrafjall 14:30  VSV 6  7°C
Hafnarfjall 14:30  SSV 8  6°C
Vatnaleið 14:40  SA 7  4°C
Hraunsmúli 14:40  SSA 4  6°C
Fróðárheiði 14:30  A 6  4°C
Brattabr. 14:30  SSV 10  3°C
Holtav.h. 14:30  SSV 13  3°C
Laxárdalsh. 14:30  SV 9  6°C
Svínad. 14:40  S 7  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent