Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds var spilað um síðustu helgi. Mótið fór fram í Logalandi og mættu sex sveitir til leiks og börðust um þrjú sæti á Íslandsmóti. Sveit Guðmundar Ólafssonar stóð uppi sem sigurvegari með 111 stig (Guðmundur, Hallgrímur, Karl Alfreðs og Bjarni Guðm.s.). Í öðru sæti urðu liðsmenn Grímshaga ehf. (Sveinbjörn, Lárus, Þorvaldur P og Jón Viðar) með 95 stig. Þriðja sætið vermir Sparisveit Vesturlands (Kristján Snorra, Stefán Garðarsson, Dóra og Rúnar) með 87 stig, en þar sem sú sveit spilaði sem gestasveit þá eru það Jón H Einarsson og félagar (Jón H, Unnsteinn, Stefán og Sigurður Már) sem fara á Íslandsmót, en þeir höfnuðu í fjórða sæti með 67 stig. Aðrar sveitir urðu alls ekki eins hlutskarpar, segir í tilkynningu frá Briddsfélagi Borgarfjarðar sem hélt utan um framkvæmd mótsins.
|