Tæplega 23 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í febrúarmánuði og er um að ræða 2.500 fleiri brottfarir en í sama mánuði 2010. Erlendum gestum fjölgaði því um 12,6% í febrúarmánuði á milli ára. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í febrúar frá Bretlandi eða 30,8% af heildarfjölda. Næstfjölmennastir voru Bandaríkjamenn eða 12,7%, síðan komu Norðmenn (7,9%), Danir (6,4%), Þjóðverjar (5,7%), Frakkar (5,5%) og Svíar (5,2%). Frá áramótun hafa 45 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu sem er um 15% aukning frá árinu áður. Umtalsvert fleiri Íslendingar eða 2.600 talsins fóru utan í febrúar í ár en í fyrra. Í ár fóru 19.600 Íslendingar utan en 17 þúsund árið áður. Aukningin nemur 15,3% á milli ára. Frá áramótum hafa um 42 þúsund Íslendingar farið utan, 5.400 fleiri en á sama tímabili árið 2010.
|