Á fundi stjórnar Sorpurðunar Vesturlands hf., sem haldinn var föstudaginn 1. apríl, var Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ kosinn formaður stjórnar og Bergur Þorgeirsson í Borgarbyggð varaformaður. Ný stjórn var kosin á aðalfundi félagsins þann 11. mars sl. og gengu þar fimm úr stjórn, flestir eftir margra ára stjórnarsetu. Aðrir í stjórn eru Friðrik Aspelund Borgarbyggð. Þröstur Ólafsson og Magnús Freyr Ólafsson frá Akraneskaupstað, Gyða Steinsdóttir bæjarstjóri í Stykkishólmi og Sveinn Pálsson sveitarstjóri Dalabyggðar.
|