Eins og fram hefur komið í nokkrum fréttum í Skessuhorni á liðnum árum er úrbóta þörf í neysluvatnsmálum íbúa Reykholtsdals og nágrennis. Á liðnu hausti var á vegum Orkuveitu Reykjavíkur borað eftir vatni í Rauðsgili. Prófanir á borholunni eru hafnar og gefur hún um sjö sekúndulítra. Að sögn Eiríks Hjálmarsson upplýsingafulltrúar OR mun sumarið leiða í ljós hvort magnið er nægt til virkjunar borholunnar, hvort það helst uppi í þurrkatíð yfir sumarið. Þá verði einnig rannsakað hvort vatnið standist gæðakröfur. Það yrði því í fyrsta lagi með haustinu sem Reykdælingar og nágrannar geti vænst úrbóta í neysluvatnsmálum sínum.
|