Nýlega rann út frestur til að sækja um starf verkefnastjóra í nýsköpun og eflingu atvinnumála á Akranesi. Umsóknir um stöðuna voru tíu en tveir drógu umsóknir sínar til baka þar sem nafnleynd kom ekki til greina. Starfshópur um nýsköpun og eflingu atvinnumála hefur umsjón með ráðningarferlinum og verða þeir umsækjendur sem teljast best uppfylla hæfniskröfur þær sem gerðar voru í auglýsingu um starfið boðaðir í viðtal á næstu dögum. Umsækjendur voru: Guðfinna Rósantsdóttir Akranesi, Guðjón Steindórsson Akureyri, Jóhann Sveinsson Reykjavík, Karvel Lindberg Karvelsson Akranesi, Ólafur Ingi Guðmundsson Akranesi, Ómar Örn Kristófersson Hvalfjarðarsveit, Óðinn Gunnar Óðinsson Reykjavík og Valtýr Sigurbjarnarson Akureyri.
|