Þriðjudagurinn 12. apríl sl. var án efa stærsti dagurinn í sögu bókaútgáfunnar Uppheima þegar tilkynnt var að einn af rithöfundum útgáfunnar, Gyrðir Elíasson, hefði fengið bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bók sína „Milli trjánna.“ Kristján Kristjánsson, aðaleigandi og stofnandi Uppheima tekur undir þetta og segir verðlaunin hafa komið þægilega á óvart, bæði hjá Uppheimum og höfundinum. „Þetta voru afar óvænt en ánægjuleg tíðindi og hafa mikil áhrif á starfsemina hjá okkur.“
Rætt er við Kristján Kristjánsson bókaútgefanda í Skessuhorni vikunnar sem kom út í dag.
|