Prentað laugardaginn 18. maí kl. 14:24 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Klakabandið fagnar 30 ára starfsafmæli

5. maí 2011

Klakabandið, danshljómsveit frá Ólafsvík, fagnar 30 ára starfsafmæli sínu á þessu ári. Hljómsveitin hefur starfað með hléum frá 1981, leikið á dansleikjum aðallega á heimaslóðum auk tímabila sem hljómsveitin gerði út á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið. Fjöldi liðsmanna sem komið hafa að starfi sveitarinnar er 19 auk nokkurra sem starfað hafa skemur á ýmsum tímum. Félagarnir hafa af þessu tilefni ákveðið að halda sérstakt afmælisball þar sem hinar ýmsu útgáfur bandsins gegnum tíðina stíga á stokk og leika vinsælustu lögin frá hinum ýmsu tímabilum áratugina þrjá. Nær allir liðsmenn í sögu hljómsveitarinnar munu spila á ballinu.

 

 

 

 

Undirbúningur afmælisballsins hefur staðið yfir um nokkurt skeið, efnisskrá valin og haldnar hafa verið nokkrar æfingar. Hljómsveitin hefur sett upp fésbókarsíðu, með nafni hljómsveitarinnar en þar má finna upplýsingar um tilurð og sögu hljómsveitarinnar. Síðuna prýða nokkrar gamlar ljósmyndir. Það má einnig finna flest lög sem hvað vinsælust hafa verið á dansleikjum hljómsveitarinnar, ennfremur er þar hljóðbrot með útgefnu lagi eins meðlimanna, Sigurðar Höskuldssonar, sem hefur gefið út tvo diska með eigin lögum. Liðsmenn hafa leikið í hinum ýmsu hljómsveitum gegnum tíðina, m.a. Sveinsstaðasextettinum, Krass, Lúkas, Nota Bene, Þúfnabönum, Upplyftingu, Sálinni, Saga Class, Dos Pilas, 1”6” og Ungmennafélaginu, svo einhverjar séu taldar.

Afmælisball Klakabandsins verður haldið laugardagskvöldið 28. maí í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Miðað við undirtektir búast Klakar við góðri aðsókn, m.a. ætla nokkrir árgangahópar að hittast og skella sér á ballið og rifja upp gamlar stundir.

 

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 14:20  ASA 10  9°C
Akrafjall 14:10  A 8  9°C
Hafnarfjall 14:20  SA 9  9°C
Vatnaleið 14:20  SA 12  6°C
Hraunsmúli 14:20  ASA 9  7°C
Fróðárheiði 14:10  ASA 14  4°C
Brattabr. 14:10  S 14  7°C
Holtav.h. 14:20  SV 16  7°C
Laxárdalsh. 14:10  SSV 13  9°C
Svínad. 14:20  S 14  9°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Grundarfjarðarbær: Vinnuskóli sumarið 2013
Grundarfjarðarbær: Vorskóli
Stykkishólmsbær: Heilsuvika 2013
Hvalfjarðarsveit: Sundleikfimi
Stykkishólmsbær: Vorskólinn 2013
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent