Fyrirlesarinn Guðrún Jónsdóttir kemur frá samtökunum Heimili og skóli. Hún mun fjalla um mikilvægi þessa að vera virkt foreldri og að hafa gott samstarf á milli heimilis og skóla, hvað foreldrastarfið er mikilvægt og hvað foreldrar geti gert. Rætt verður um foreldrastarf, bekkjastarf og skólamál almennt. Fyrirlesturinn verður í sal Grundaskóla og mun hefjast kl: 18.00 en fundurinn stendur til kl. 19.30.
„Vonumst við hjá samtökunum til þess að fá sem flesta foreldra, aðstandendur og þá sem vinna með börnum til að mæta á þennann fyrsta viðburð sem samtökin standa að. Ég bendi á heimasíðu samtakanna www.skagaforeldrar.is og hvet alla þá sem hafa eitthvað fram að færa að koma sér í samband við stjórnina. Verum virk í foreldrastarfi og látum okkur málin barna okkar varða,“ segir Ólöf Linda.
|