Árni Einarsson verður 80 ára í haust. Hann byrjaði að keppa 18 ára gamall en hans félag alla tíð hefur verið Ungmennafélag Selfoss. Aðalgrein Árna lengstum var kringlukast. Árið 1957 hætti Árni að keppa en tók upp þráðinn að nýju fyrir þremur árum síðan, 77 ára að aldri. Hann hefur keppt á Evrópu- og Norðurlandamótum öldunga en frá því að hann fór að keppa að nýju 2008 hefur hann unnið til 56 verðlaunapeninga.
Keppnisgreinar á mótinu í sumar verða badminton, blak, boccia, bridds, fjallaskokk, frjálsar íþróttir, golf, hestaíþróttir, línudans, pútt, skák, starfsíþróttir, sund og þríþraut. Skráning og aðrar upplýsingar um mótið eru að finna á www.landsmotumfi50.is Þátttökugjald er 6.000 kr. óháð greinafjölda. Innifalið í verðinu er keppni, tjaldsvæði og afþreying meðan á mótinu stendur.
|