Enginn núlifandi Íslendingur þekkir betur til lífsins í Þorvaldarbúð á Hellissandi en Guðmundur Júlíusson kaupmaður í Melabúðinni í Reykjavík. Hann er fæddur í Sólheimum á Hellissandi árið 1928 og ólst þar upp. Sem barn og unglingur var Guðmundur daglega í Þorvaldarbúð enda bjó móðuramma hans, Þuríður Þórðardóttir, þar þá ásamt uppkomnum börnum sínum en afi hans Guðmundur Þorsteinsson var látinn þegar Guðmundur Júlíusson man eftir sér. Þurrabúðir voru heimili landlausra en þeir sem bjuggu í þurrabúðum unnu öll sín störf fyrir landeigandann, til sjós og lands. Nú, árið 2011 og 83 ára gamall, rifjar hann upp kynni sín af þurrabúðinni Þorvaldarbúð en rætt var við hann í henni endurbyggðri.
Með Skessuhorni vikunnar sem kom út í gær fylgir 24 síðna sérblað tileinkað Sjómannadeginum næstkomandi sunnudag. Þar má meðal annars finna ítarlega frásögn Guðmundar Júlíussonar um síðustu þurrabúðina á Hellissandi.
|