Hátíð hafsins var í dag á Akranesi. Hátíðarhöld fóru fram á Safnasvæðinu í Görðum og við höfnina. Í morgun hófst dagskrá með því að bæjarbúum var boðið í siglingu á ellefu trillum. Börn og fullorðnir skemmtu sér vel og nutu þess að fá að fara í sjóferð. Fremur slök mæting var á dagskrá sem hófst eftir hádegið við höfnina en þeir sem mættu skemmtu sér þó ágætlega. Flaggað var á tveimur trillum í tilefni dagsins og segir það meira en mörg orð um stemninguna í röðum útgerðarfyrirtækja. Í tilefni dagsins var skrifað undir endurnýjaðan þjónustusamning milli Akraneskaupstaðar og Björgunarfélags Akraness við Jónsbúð. Innandyra seldu síðan konur í slysavarnadeildinni Líf kaffi. Meðfylgjandi mynd tók Kolbrún Ingvarsdóttir af þeim Ásgeiri Kristinssyni formanni BA og Árna Múla Jónassyni bæjarstjóra eftir að endurnýjaður þjónustusamningur var undirritaður.
|