Síðastliðinn laugardag var opið hús í Ráðhúsi Snæfellsbæjar við Klettsbúð 4 á Hellissandi. Bæjarbúum var boðið að koma og skoða þetta nýja húsnæði og þiggja veitingar. Í húsinu var áður útibú Landsbanka Íslands og íbúð en nú eru þar skrifstofur og fundaaðstaða bæjarstjórnar auk skrifstofu Félags- og skólaþjónustu Snæfellsness. Undanfarin ár hafa bæjarskrifstofurnar verið í félagsheimilinu Röst. Kristinn Jónasson bæjarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins tóku á móti gestum. Húsið er hið glæsilegasta og rúmar vel þá starfsemi sem þangað er nú flutt. Um 200 gestir nýttu sér heimboðið.
|