Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 17:06 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Sundmenn Akraness stóðu sig vel á smáþjóðaleikunum

10. júní 2011

Smáþjóðaleikarnir fóru fram í fjórtánda sinn í Liechtenstein í síðustu viku. Sundfélag Akraness átti að þessu sinni tvo sundmenn í íslenska landsliðinu, þau Ágúst Júlíusson og Ingu Elínu Cryer, en þau syntu bæði mjög vel á mótinu. Inga Elín vann til fjögurra verðlauna. Hún fékk gullverðlaun í 4x200m skriðsund boðsundi með þeim Eygló Ósk Gústafsdóttur, Bryndísi Rún Hansen og Ingibjörgu Kristínu Jónsdóttur. Inga fékk silfurverðlaun í 800m skriðsundi og brons í 400m fjórsundi og 400m skriðsundi. Einnig náði hún í úrslit í 200m flugsundi og endaði í 5.sæti þar.

 

 

 

 

 

Ágúst vann til þriggja verðlauna en þar á meðal var eitt gull í 4x100m fjórsund boðsundi, þar sem hann synti flugsundssprettinn, en með honum í sveitinni voru Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Jakob Jóhann Sveinsson og Árni Már Árnason. Þeir kappar voru mjög nálægt lands- og mótsmeti í þessari grein. Ágúst fékk þar að auki tvenn silfurverðlaun, í 100m flugsundi og 4x100m skriðsund boðsundi. Þá komst Ágúst í úrslit í 200m flugsundi og endaði í 6. sæti. Þess má geta að íslenska sundliðið vann til 43 verðlauna á þessum Smáþjóðaleikum en 58 verðlaun voru í pottinum svo þetta má teljast mjög góður árangur. Allt íslenska liðið vann samtals 68 verðlaun í ýmsum íþróttagreinum.

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 17:00  VSV 2  12°C
Akrafjall 16:50  NV 5  14°C
Hafnarfjall 17:00  NNV 6  13°C
Vatnaleið 17:00  VNV 7  12°C
Hraunsmúli 16:50  N 12  13°C
Fróðárheiði 16:50  VNV 11  10°C
Brattabr. 16:50  NNA 6  12°C
Holtav.h. 17:00  N 10  7°C
Laxárdalsh. 16:50  NNA 14  8°C
Svínad. 17:00  NNA 6  11°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent