Prentað föstudaginn 24. maí kl. 13:29 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Víkingar sóttu þrjú stig í Fagralund

10. júní 2011

Víkingar sóttu lið HK heim í Kópavoginn í gærkvöldi. Heimaleikir HK fara öllu jöfnu fram á Kópavogsvelli en hann hefur verið lokaður undanfarið og var því leikið á æfingasvæðinu í Fagralundi þar sem félagsheimili HK stendur. Það virtist ekki hjálpa HK-ingum mikið að vera á sínu eigin svæði því á 24. mínútu fækkaði í liði þeirra. Framherjinn sterki Eyþór Helgi Birgisson fékk þá rautt spjald vegna óíþróttamannslegrar hegðunar en hann var ekki ánægður með áhorfendur og sendi þeim merki með löngutöng, eitthvað sem dómarinn var ekki sáttur við. Víkingar léku því manni fleiri það sem eftir lifði leiks en náðu ekki að nýta sér liðsmuninn fyrr en í seinni hálfleik. Valsarinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson sem er á láni hjá Víkingi skoraði þá sitt fyrsta mark í sumar með frábæru skoti og staðan orðin 0-1. Varamaðurinn Hilmar Þór Hilmarsson kom inn á fyrir Helga Óttarr Hafsteinsson á 68. mínútu og náði að setja mark sitt á leikinn. Hann tryggði Víkingi stigin þrjú þegar hann skoraði á 85. mínútu og þar við sat. Mörkin urðu ekki fleiri og fyrsti sigur Víkinga í sumar staðreynd. Þeir hafa sex stig úr sex leikjum og geta bætt við sig stigum þegar þeir mæta Þrótti Reykjavík á Ólafsvíkurvelli, kl. 20, fimmtudaginn 16. júní næstkomandi.

 

 

 

 

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 13:10  ASA 9  10°C
Akrafjall 13:10  ASA 7  10°C
Hafnarfjall 13:10  SA 14  11°C
Vatnaleið 13:10  SA 6  8°C
Hraunsmúli 13:10  A 7  9°C
Fróðárheiði 13:10  A 10  6°C
Brattabr. 13:10  SSA 6  7°C
Holtav.h. 13:10  NNV 2  4°C
Laxárdalsh. 13:10  ANA 5  5°C
Svínad. 13:10  ANA 7  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Hvalfjarðarsveit: Lokað í dag í Heiðarborg
Stykkishólmsbær: Sumarlokun leikskólans 2013
Dalabyggð: Íbúakönnun 2013
Snæfellsbær: Vatnslaust
Grundarfjarðarbær: Blóðsöfnun
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent