Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin á Patreksfirði nú um helgina. Leikstjórarnir Ólafur Jóhannesson og Guðni Páll Sæmundsson frumsýna þar myndina Land míns föður. Myndin fjallar um lítið bændasamfélag í Dölunum en sjálfur er Ólafur ættaður þaðan. Í myndinni er samtvinnuð saga fjögurra persóna um lífsbaráttu þeirra þar sem nútíminn og markaðsöfl hafa ýtt til hliðar gömlum gildum og venjum. Samfélagið á í hættu á að verða gjaldþrota en neitar að gefast upp og áhorfandinn fylgist með því í gegnum baráttu persóna Munda, Skjaldar, Bjarna og móður hans Sigrúnar. Myndin verður frumsýnd á sunnudeginum kl. 21:30 og verður sú síðasta á dagskránni.
|