Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 14:10 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Snæfell féll úr bikarnum eftir tvíframlengdan leik

24. janúar 2012

KR getur þakkað Joshua Brown að komast áfram í undanúrslit í bikarnum, en Vesturbæingarnir slógu Snæfell út úr Powerade bikarnum í tvíframlengdum leik í DHL-höllinni í gærkveldi. Lokatölur urðu 111:104, en staðan eftir venjulegan leiktíma var 83:83 og 91:91 eftir fyrri framlenginguna. Brown skoraði 49 stig fyrir KR og tók sitt lið nánast á bakið, eins og segir í leiklýsingu vefmiðilsins karfan.is. Áður en leikurinn hófst var mínútu þögn til minningar um knattspyrnumanninn Sigurstein Gíslason sem nýverið féll frá eftir erfið veikindi, en Sigursteinn gerði garðinn m.a. frægan með KR á sínum tíma og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með félaginu.

 

 

 

 

Heimamenn í KR byrjuðu betur og léku þétta vörn. Lítið var skorað á upphafsmínútunum en KR leiddi eftir fyrsta leikhluta 27:17. Hafþór Gunnarsson og Ólafur Torfason létu vel að sér kveða í liði gestanna í öðrum leikhluta þar sem Snæfell skoraði 30 stig gegn 18 og leiddu gestirnir úr Hólminum því 44:46 í hálfleik. KR ingar mættu grimmir til seinni hálfleiks og skoruðu fyrstu tíu stigin. Brown var í aðalhlutverkinu og lauk hann þriðja leikhluta með flautukörfu. KR leiddi 66:61 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Það var síðan alveg undir lok venjulegs leiktíma sem Snæfelli tókst að jafna, mest fyrir framtak Quincy Hankins-Cole. Á ýmsu gekk síðan í fyrri framlengingunni en heimamenn mun sterkari í seinni framlengingunni, eða öllu heldur Joshua Brown sem gerði út um leikinn með snilldarleik, hvílíkur happdrættisvinningur fyrir KR.

Hjá Snæfelli var Quincy Hankins-Cole atkvæðamestur með 23 stig, 10 fráköst og 3 varin skot, Jón Ólafur Jónsson skoraði 22 og tók 10 fráköst, Marquis Sheldon Hall 16, 4 fráköst og 5 stoðsendingar, Ólafur Torfason 13, Hafþór Ingi Gunnarsson 13 og 4 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9 og 8 fráköst og Sveinn Arnar Davíðsson 8 og 5 fráköst.

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 14:00  VNV 10  6°C
Akrafjall 14:00  V 11  7°C
Hafnarfjall 14:00  VNV 9  6°C
Vatnaleið 14:00  NV 9  3°C
Hraunsmúli 14:00  NNV 10  7°C
Fróðárheiði 14:00  VNV 0  1°C
Brattabr. 14:00  NV 6  1°C
Holtav.h. 14:00  SV 5  1°C
Laxárdalsh. 14:00  VSV 8  4°C
Svínad. 14:00  N 7  3°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
Grundarfjarðarbær: Fjarmenntaskólinn
Grundarfjarðarbær: Skemmtiferðaskip sumarið 2013
Grundarfjarðarbær: Vinnuskóli sumarið 2013
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent