Veður var slæmt á Vesturlandi frá miðvikudegi og fram á fimmtudag í liðinni viku, eins og raunar um mestallt landið. Af þeim sökum var víða ófært, m.a. í Borgarfirði, Dölum og á Snæfellsnesi. Síðdegis á miðvikudaginn lentu t.d. smábílar í vandræðum vegna snjóa á veginum við Búlandshöfða, milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur. Rúta með nemendur fjölbrautaskólans var þarna á ferð og þurfti bílstjóri hennar að setja keðjur undir þar sem smábílar sátu fastir á veginum. “Það voru mjög erfiðar aðstæður þarna, einkum vegna þess að bílar sátu fastir, mikill snjór kominn á veginn og blint til aksturs,” segir Svanur Kristófersson sem sér um akstur nemenda FSN milli staðanna. Ferð skólafólksins tók því tvo tíma í stað þess að venjulega er skólabíllinn milli Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar 20-25 mínútur í ferðinni.
|