Áður en björgunarsveitir voru stofnaðar, víða um land, var nágrannavarsla á bænum, ef svo má að orði komast. „Í upphafi var ekki starfandi hér nein björgunarsveit. Það var bara hringt á milli bæja ef þurfti aðstoð. Síðan verður slys í fjárleitum. Manns var saknað. Þeir sem voru á fjallinu fóru auðvitað allir að leita. Eins og því miður getur gerst í okkar starfi þá fannst maðurinn ekki nógu snemma en þessi atburður varð kveikjan að stofnun sveitarinnar. Maðurinn sem lést hét Hreinn Heiðar Árnason og ber sveitin nafn hans,“ segir Grétar Þór.
Lesa má viðtal við Grétar Þór Eyþórsson bónda á Höll í Þverárhlíð og formanns björgunarsveitarinnar Heiðars í Skessuhorni vikunnar. |