Í kvöld, þriðjudaginn 28. febrúar flytur Dr. Ágúst Einarsson, prófessor við Háskólann á Bifröst og fyrrverandi rektor skólans, fyrirlesturinn, Hagræn áhrif menningar. Fyrirlesturinn verður í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti og hefst kl. 20:30. Ágúst fjallar um hin efnahagslegu umsvif menningar og hlutdeild hennar og skapandi atvinnugreina í efnahagslífinu. Hann mun jafnframt ræða hina óvenjulegu miklu menningarneyslu Íslendinga og bera hana saman við önnur lönd. Í erindinu verður einnig fjallað um útgjöld opinberra aðila til menningarmála og greint frá sóknarfærum á þessu sviði. Aðangur er kr. 500 með kaffiveitingum í hléi.
|
Dr. Ágúst Einarsson hefur komið víða við í íslensku þjóðlífi. Hann starfaði um árabil sem framkvæmdastjóri við útgerð og fiskvinnslu í Reykjavík og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum innan atvinnulífsins og verið stjórnarformaður í mörgum fyrirtækjum. Ágúst tók virkan þátt í stjórnmálum á sínum tíma og var alþingismaður frá 1995 til 1999 og sat einnig á Alþingi 1978 til 1979. Hann hefur gegnt mörgum opinberum störfum og var m.a. formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, Samninganefndar ríkisins og Framtakssjóðs Íslands auk þess sem hann sat í stjórnum Landsvirkjunar og Borgarleikhússins. Ágúst var um árabil prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur skrifað margar bækur, m.a. um rekstrarhagfræði og menningu. Ágúst hefur flutt fjölmörg erindi á alþjóðlegum vísindaráðstefnum og er nú varaforseti Evrópusamtaka lítilla og meðalstórra fyrirtækja og frumkvöðla en það eru samtök evrópskra fræðimanna á sviði rannsókna.
|