Boðað er til almennrar söngvöku í Borgarnesi næstkomandi föstudag, 16. mars klukkan 21. Fjöldasöngur og kvæðalög verða flutt af félögum í Kvæðamannafélaginu Iðunni. Eitthvað fleira gæti orðið til skemmtunar og meðal annars hugsanlegt að frumsamin verði lög tveggja eða þriggja sönglagahöfunda. Sem fyrr er það Bjarni Valtýr Guðjónsson sem stendur fyrir vökunni, sem fram fer í Safnaðarheimilinu Félagsbæ. Aðgangseyrir er krónur 1000 og er kaffi og meðlæti innifalið. „Nú á að fylla salinn,“ segir Bjarni Valtýr að séu einkunnarorðin að þessu sinni.
|