Árshátíð Kleppjárnsreykja-deildar Grunnskóla Borgarfjarðar verður á morgun, fimmtudaginn 22. mars klukkan 15. Fagnað er á þessu ári 50 ára afmæli skólahalds á Kleppjárnsreykjum og vegna þeirra tímamóta verður fyrirkomulag árshátíðar skólans með öðru sniði. Ekki verða allir nemendur með leikþátt á sviði heldur munu þeir flytja mismunandi verk og kynna dagskrá sem bæði fer fram í íþróttahúsi og skólahúsinu. Þessi verk eru ýmist stuttmyndir, viðtöl, uppsetning ljósmynda, afrek nemenda, tískustraumar og sitthvað fleira. Sú sýning verður sett upp í skólanum, en leikritin flutt á sviði í íþróttahúsinu. Í tilkynningu frá skólanum segir að aðstandendur; fyrrum nemendur og starfsmenn sem og aðrir velunnarar skólans séu velkomnir. Sýning nemenda skólans verður einnig opin í skólanum föstudaginn 23. og laugardaginn 24. mars.
|