Um þessar mundir eru 70 ár liðin frá því að Bíóhöllin á Akranesi var reist. Allt frá því að hjónin Haraldur Böðvarsson og Ingunn Sveinsdóttir gáfu húsið Akraneskaupstað fullbúið til eignar, ásamt áföstum gangstéttum, lóð, innanstokksmunum og sýningarbúnaði haustið 1943, þá hefur Bíóhöllin verið einn af miðpunktum menningarstarfs á Akranesi. Þar hafa farið fram ófáar leiksýningar, tónleikar, fundir og síðast en ekki síst kvikmyndasýningar. Húsið skapar því sannast sagna ómissandi rými til listsköpunar og mannamóta á Akranesi. Hugur er í núverandi rekstraraðilum Bíóhallarinnar á þessum tímamótum og hafa þeir þessa dagana í undirbúningi uppfærslu á verkinu Blóðbræðrum eftir breska leikritaskáldið Willy Russel.
|