




Skessuhorn: |
Sóknarfæri í fuglatengdri ferðaþjónustu á Snæfellsnesi og í Dölum |
23. mars 2012 |
Út er komin skýrsla Náttúrustofu Vesturlands og Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi um skráningu á fuglalífi á Snæfellsnesi og í Dölum og möguleikum sem felast í fuglatengdri ferðaþjónustu á svæðinu. „Snæfellsnes og Breiðafjörður eru rík af fuglalífi og er ljóst að þegar kemur að fuglaskoðun er hér um vannýtta auðlind að ræða,“ segir í tilkynningu Náttúrustofu Vesturlands. Þar segir að fuglaskoðun sé ört vaxandi áhugamál í heiminum og er Ísland engin undantekning. „Talið er að yfir 150 þúsund innlendir og erlendir ferðamenn hafi skoðað fugla á ferðum sínum um Ísland árið 2008 og er líklegt að umfang fuglatengdrar ferðaþjónustu eigi eftir að aukast verulega á komandi árum. Mörg ónýtt tækifæri eru á þessu sviði til markaðssetningar svæða á Íslandi. Hins vegar er víðast hvar skortur á stöðluðum skráningum fuglalífs sem nýtast við kynningu svæða til fuglaskoðunar. Verkefni Náttúrustofunnar og Háskólasetursins fólst í að bregðast við þessu og útvega upplýsingar sem ferðaþjónustan gæti nýtt sér.“
|
Fuglar voru taldir á helstu ferðamannaleiðum um Snæfellsnes og Dali í fimm athugunarferðum yfir sumartímann, frá fyrri hluta maí og fram undir miðjan ágúst. Í talningunum sáust 70 tegundir fugla, þar af 61 tegund (af 77 alls) íslenskra varpfugla. Að jafnaði var styttra á milli álitlegra fuglaskoðunarstaða á Snæfellsnesi en í Dölum og meiri fjölbreytni búsvæða fyrir fugla. Líkur á að sjá haförn voru mestar í nágrenni við Klofning í Dalasýslu og í Suðureyjasiglingu Sæferða frá Stykkishólmi. Vænlegasti tími til fuglaskoðunar var í maí og júní, þ.e.a.s. áður en aðalstraumur ferðamanna um Ísland hefst, sem virðist fela í sér tækifæri til lengingar ferðamannatímans og þar með styrkingu rekstrargrunns ferðaþjónustunnar á svæðinu. Aðalafurð verkefnisins eru grunnupplýsingar um fuglalíf á svæðinu og verður miðlað til ferðaþjónustunnar, sem mun geta notfært sér niðurstöður þess til að auðvelda leiðsögn jafnt sem fræðslu til starfsmanna sinna og ferðamanna. Loks segir í frétt Náttúrustofu um útgáfu skýrslunnar að nú sé leitað fjármagns til að halda verkefninu áfram með gerð vefsíðu, bæklings og fleiru sem nýtist ferðaþjónustunni og hinum almenna fuglaskoðara. Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um fuglalíf svæðisins; einnig lýsingu á staðháttum og fuglalífi ellefu undirsvæða. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og Vaxtarsamningi Vesturlands.
Sjá skýrsluna í heild á: www.nsv.is
|
![]() |
| 2013 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2012 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2011 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2010 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2009 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2008 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2007 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2006 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2005 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2004 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2003 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2002 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2001 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2000 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
|
|
|
Samstarfsaðilar
|