Undir forystu Írisar Reynisdóttur garðyrkjufræðings hjá Akraneskaupstað, var í gærmorgun blásið til vorverka á Leynislækjarflöt á Akranesi, en flötin er milli Víðigrundar og Leynisbrautar. Íbúar við göturnar tóku þátt í verkefninu en auk þess lögðu nokkrir því lið. Faxaflóahafnir og Akraneskaupstaður styrktu verkefnið, Anton bóndi á Ytri Hólmi útvegaði hrossaskít og flutning á honum og Gísli Jónsson lagði til tæki. Byrjað var að koma fyrir myndarlegum öspum sem átt hafa sín uppvaxtarár á Grundartanga en verða nú að flytja „að heiman“ sökum tilfærslu á vatnslögn. Samtals er gert ráð fyrir að 85 aspir verði fluttar á svæðið og eignist þar ný heimkynni. Áætlað er að lokið verði við verkið í næstu viku.
|