Veður hefur farið versnandi á Vesturlandi eftir því sem liðið hefur á daginn, en Veðurstofan varar við sunnan- og suðvestanstormi í dag og í kvöld, einkum um landið vestan- og norðanvert. Núna fyrir hádegið var vindur farinn að slá upp fyrir þrjátíu metrana undir Hafnarfjalli en þá var veður ennþá tiltölulega stillt á Kjalarnesinu. Þrátt fyrir ekki meiri vind undir Hafnarfjalli gerðist það þó í morgun í einni vindhviðunni að hestakerra fór þar á hliðina inni á miðjum vegi. Ekki mun það afvik hafa verið alvarlegt, kerran að líkindum tóm, því atvikið var ekki tilkynnt til lögreglunnar í Borgarnesi. Samkvæmt spá Veðurstofu er gert ráð fyrir að vindurinn muni aukast á Vesturlandi nú eftir hádegið í dag og stormasamt verði fram á kvöld í það minnsta. Hætta sé á sviptivindum einkum við fjöll.
|